1974
hófu þau rekstur ferðaþjónustunnar sem
í upphafi var einungis 3 herbergi inn á bænum.
Árið 1988 tekur sonur þeirra Pálmi við
búskapnum og seinna eða árið 2000 tekur hann
ásamt konu sinni Jóhönnu Jónsdóttur
við ferðaþjónustunni sem þau reka nú
ásamt því að stunda sauðfjárrækt.
Skaftáreldar
og móðuharðindin.
Miklar
náttúruhamfarir af völdum eldgosa og jökulhlaupa
hafa í gegnum aldirnar mótað landslag og mannlíf
héraðsins. Árið 1783 rann mikið hraunflóð
úr Lakagígum á Síðumannaafrétti,
þekkt sem “Skaftáreldar”. Er það
talið eitt hið mesta hraunflóð sem runnið hefur
á Jörðinni í einu gosi.
Hraunstraumarnir fylltu gljúfur Skaftár og Hverfisfljóts
og runnu þar til byggða í tveimur hraunfljótum
og
breiddust svo út yfir láglendið. Hraunið tók
af marga bæi og eyddi stórum landsvæðum í
byggðinni. Öskufall varð mikið og afleiðingar
eldgossins urðu skelfilegar fyrir íbúa héraðsins
og landsmenn alla. Þetta tímabil hefur verið nefnt
“Móðuharðindin”. norðaustanverðum
Bandaríkjunum varð móðunnar einnig vart. Thomas
Jefferson, síðar forseti Bandaríkjanna, var mikill
áhugamaður um veðurfræði og hélt nákvæma
skrá yfir hitastig á þessum árum. Samkvæmt
mælingum hans kólnaði mjög síðsumars
1783 og næstu þrjú árin voru óvenju
köld. Veturinn 1784, var til dæmis 4,8 °C undir meðaltali
þessa árstíma. Til samanburðar má nefna
að árs meðalhiti hér á landi er um 5°C.
Þannig var höfnin í New York lokuð vegna ísa
í 10 daga og sleðafært um mörg sund sem aldrei
hafði lagt, áður svo vitað væri.
Benjamin
Franklin sá kunni vísindamaður var sendiherra Bandaríkjanna
í Frakklandi og bjó í París á þessum
árum. Um sumarið 1783 og árin þar á
eftir skrifaði hann meðal annars.
,,Um
sumarið lá þykk bláleit móða yfir,
sem skyggði á sólina um alla Evrópu og stóran
hluta Norður- Ameríku. Á þessum árstíma
þegar geislar sólar eiga að vera sterkastir, voru
þeir máttlitlir gagnvart þessari þykku móðu.
Sólin sást ekki við sólarupprás í
París fyrr en hún var komin í 19° hæð
yfir sjóndeildarhringinn, en það stytti þann
tíma sem sólar naut um 2 -3 klst yfir daginn. Ef sólargeislum
er safnað gegnum safnlinsu stækkunarglers og þeim
beint á pappír, brenna þeir gat á hann.
En vegna móðunnar voru geislar sólar svo veikir,
að væri þeim safnað í brennipunkt á
pappir gerðist ekkert. Það örlað varla á
á brúnum lit á pappirnum. En hvaðan kom þessi
þoka sem lá yfir stórum hluta heims? Ef til vill
á hún uppruna sinn utan okkar jarðar, þá
helst ryk, frá himinhnetti eða halastjörnu ,sem jörðin
hefur fangað.. Líklegra er þó að þessi
móða sé komin frá Íslandi, reykur
sem streymt hefur frá eldgosi í Heklu og hugsanlega
frá því nýja eldfjalli sem reis úr
sæ við ísland vorið 1783 og gæti reykur
þess hafa borist um allt norðurhvel með vindum.''
Í
Mýrdalsjökli er eldstöðin Katla sem margsinnis
hefur gosið frá því sögur hófust,
síðast árið 1918. Mikil jökulhlaup hafa
fallið niður Mýrdalssand í kjölfar Kötlugosa
og ógnað byggðum í nágrenninu. Þá
hafa einnig orðið mikil eldgos á sögulegum tíma
í Eldgjá í Skaftártungu og í Öræfajökli,
auk eldgosa í smærri eldstöðvum.