FERÐAÞJÓNUSTAN HUNKUBÖKKUM
880 Kirkjubæjarklaustri

tel : 487 4681 | mobile: 865 2652 | Fax: 487 4881 | sendu póst

Vegalengdir að nokkrum fallegum stöðum,
frá Hunkubökkum

Fjaðrárgljúfur 2 km
Vík 65 Km
Skaftafell 78 Km
Laki 44 Km
Eldgjá 67 Km
Landmannnalaugar 120 Km


Umhverfi Hunkubakka er rómað fyrir náttúrufegurð og milt veðurfar.
Þar eru óþrjótandi möguleikar fyrir náttúruunnendur að sjá eitthvað nýtt enda andstæður miklar í náttúrunni. Mikið er um athyglisverðar gönguleiðir í grenndinni, og fallegt útsýni, mikið fuglalíf er á svæðinu. Vegalengdir að áhugav. stöðum t.d. Fjaðrárgljúfur 2 km, Fagrifoss 20 km, Lakagígar 44 km, þjóðgarðurinn Skaftafell 78 km, Skálafellsjökull 150 km og Eldgjá 67 km, Dagl. Rútuferðir með Kynnisferðum á þessa staði á sumrin. Hunkub. eru 1 km frá vegi 1 – á leiðinni að Lakagígum. Af áhugaverðum stöðum má nefna Systrastapa, Systravatn, Kirkjugólf, Núpstað, Jökulsárlón, Landsbrotshóla, Fjarðarárgljúfur, Dverghamra og Núpsstaðaskóg, Systrastapi og Systravatn eru þekktar söguslóðir og nú hefur bæst við nýr áfangastaður því í sumar fannst skammt frá Klaustri stór og áður óþekktur hraunhellir sem fróðlegt er að kanna.

Á Hunkubökkum er útveguð gæsaveiðileyfi.

Frá Hunkubökkum er stutt til flestra áhugaverðustu staða Suðurlands.
Mikið er um athyglisverðar gönguleiðir í grenndinni má þar nefna gönguleiðir í Fjaðrárgljúfur, austur brúnir á Kirkjubæjarklaustur, upp að Vörðu, meðfram hraunbrún og um Landbrotshóla ásamt ýmsum öðrum möguleikum. Getum bent ýmsa möguleika því þetta er ekki tæmandi listi. Sundlaug er á Kirkjubæjarklaustri 6 km. Einnig er þar handverksbúð sem heimamenn selja vörur sínar. Opin yfir sumarmánuði. Stutt er í golf eða ca 10 km.


Myndir frá Hunkubökkum og nágrenni
smelltu á mynd til að sjá hana stærri.

Dverghamrar
útsýn að Hunkubökkum
Systrafoss

Heyskapur

Pálmi við rúning

Stúlka með hundinn á bænum

Orrustuhóll með Vatnajökul í baksýn

á Fjalli

Kvikmyndataka við bæinn
ÁHUGAVERÐAR VEFSÍÐUR
Kirkjubæjarklaustur
Snjósleðaferðir
Siglingar
Veðrið
Tökum við kreditkortum        Morgunverður Matur og morgunverður Eldunaraðstaða Vínveitingaleyfi Reykingar bannaðar Veiði  Búskapur